Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 29. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:59 0 0°C
Laxárdalsh. 13:59 0 0°C
Vatnsskarð 13:59 0 0°C
Þverárfjall 13:59 0 0°C
Kjalarnes 13:59 0 0°C
Hafnarfjall 13:59 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
Pistlar | 28. maí 2014 - kl. 20:15
Um öldrunarmál og fleira
Eftir Bóthildi Halldórsdóttur sem skipar 12. sæti á L-listanum

Ágætu kjósendur,

Enn og aftur er komið að bæjarstjónarkosningum, já tíminn er fljótur að líða. Aldrei datt mér í hug að ég gæfi kost mér á lista. Mér eins og mörgum fleirum hefur þótt mikið betra að sitja heima og kvarta út af hinu og þessu sem betur mætti fara, eða hefur ekki verið gert. Ég er löngu búin að komast að því að það gerist ekkert við eldhúsborðið þó upp komi ýmsar hugmyndir, nema maður vinni í því sjálfur að koma þeim áfram. En sitt sýnist hverjum sem eðlilegt er og þó ég sé ekki ofarlega á lista hef ég mínar skoðanir og drauma um okkar ágæta bæ sem mig langar að deila með ykkur. Því hér er gott að búa og gott fólk, sama í hvaða flokki það er. Eins og margir vita er ég búin að vinna á HSB í samfleytt 37 ár og þekki vel til og er annt um stofnunina og þá sem þar dvelja. Ég tel að gott sjúkrahús með góðu starfsfólki sé ein af grunnstoðum okkar samfélags. Oft hefur nú blásið köldu á þessa stofnun, en hún hefur staðið af sér sterka sunnan strauma í formi niðurskurðar. En nú er komið að því að sameina þessa stofnun öðrum stonfunum á Norðurlandi, nokkuð sem lengi hefur verið í umræðu en ekki orðið að veruleika fyrr en nú. Nú þurfum við að vera vel vakandi og gæta þess að halda okkar og heldur að gefa í og nýta betur það húnsnæði sem staðið hefur ónotað um nokkurn tíma og ég veit að félagar mínir í L-listanum eru sammála mér í því. Reyndar er Gerður Beta vinkona mín búin að skrifa frábæra grein um þennan málaflokk sem ég hvet ykkur til að lesa. En svo ég haldi áfram með mín áhugamál, þá langar mig að sjá betur hlúð að öldruðum og öryrkjum. Þessir málaflokkar hafa allt of oft gleymst og það er ekki gott til afspurnar fyrir okkur og þar sem aldurinn færist yfir mig, þá veit ég enn betur að margt má lagfæra í þeim málum. Í þeirri kosningabaráttu sem nú stendur yfir og fer mikið fram á netmiðlum, gleymist að margir aldraðir hafa ekki tölvur og fylgjast þess vegna ekki með og það er svo með fleira sem ég ætla ekki að fara nánar út í núna. Enda er betra að láta verkin tala og það vona ég svo sannarlega að okkur takist. Stjónsýslan þarf líka að vera opnari og við þurfum öll að vera á varðbergi og fylgjast með því sem er að gerast í okkar samfélagi og láta í okkur heyra því þetta er okkar bæjarfélag. Þess vegna kýs ég L-Listann.

Ljúfar kveðjur Bóthildur

Höf. asgeirh
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið