Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Þriðjudagur, 6. júní 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Júní 2023
SMÞMFL
28293031123
45678910
11121314151617
18192021222324
2526272829301
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:00 SSV 6 4°C
Laxárdalsh. 23:00 VSV 5 5°C
Vatnsskarð 23:00 V 3 4°C
Þverárfjall 23:00 VSV 3 4°C
Kjalarnes 23:00 NNV 3 6°C
Hafnarfjall 23:00 SSV 2 7°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
30. október 2022
Stutt hugleiðing um íslenskuna
Sumum finnst ókurteisi að einhver tali íslensku og jafnvel móðgast fyrir hönd þeirra sem ekki tala hana.
::Lesa

SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Eftir Ásgerði Pálsdóttur
05. júní 2023
50. þáttur. Eftir Jón Torfason
04. júní 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
03. júní 2023
Eftir Eyjólf Ármannsson
29. maí 2023
Eftir Pétur Arason sveitarstjóra Húnabyggðar
26. maí 2023
49. þáttur: Eftir Jón Torfason
20. maí 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
18. maí 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
16. maí 2023
Fréttir | 19. desember 2014 - kl. 18:43
Fallist á 14 af 22 kröfum ríkisins um þjóðlendur
Niðurstöður óbyggðanefndar í ágreiningsmálum á svæði 8 norður

Óbyggðanefnd kvað í dag upp úrskurði í ágreiningsmálum um þjóðlendur á svonefndu svæði 8 norður (8A). Svæðið tekur til Húnavatnssýslu vestan Blöndu ásamt Skaga og skiptist í svæðin Skaga, Húnavatnshrepp, Húnaþing vestra, syðri hluta og Vatnsnes.

Á Skaga var fallist á kröfur íslenska ríkisins um að landsvæðin Almenningur á Skaga, Skrapatunguafrétt, ágreiningssvæði vegna Fannlaugarstaða og ágreiningarsvæði vegna Skálahnjúks séu þjóðlendur. Fallist var á varakröfu gagnaðila íslenska ríkisins um að ofangreind svæði séu jafnframt afréttir. Hafnað var kröfum um að Reynistaðaafrétt teldist til þjóðlenda.

Í Húnavatnshreppi var fallist á kröfur íslenska ríkisins um að landsvæðin Auðkúluheiði, Forsæludalskvíslar, landsvæði sunnan Grímstunguheiðar, Lambatungur, landsvæði sunnan Haukagilsheiðar og Lambatungna og hluti Kornsártungna séu þjóðlendur. Fallist var á varakröfur gagnaðila íslenska ríkisins um að ofangreind svæði séu jafnframt afréttir. Þá er að hluta til fallist á kröfur Landsvirkjunar um tiltekin réttindi á Auðkúluheiði vegna Blönduvirkjunar. Aftur á móti var því hafnað að Grímstunguheiði, Haukagilsheiði og Sauðadalur teldust til þjóðlenda.

Í Húnaþingi vestra, syðri hluta var fallist á kröfur íslenska ríkisins um að landsvæðin austurheiði Víðidalstunguheiðar, landsvæði sunnan Víðitalstunguheiðar, Húksheiði og Staðarhreppsafréttur séu þjóðlendur. Fallist er á varakröfur gagnaðila íslenska ríkisins um að ofangreind svæði séu jafnframt afréttir. Kröfum ríkisins um að vesturheiði Víðidalstunguheiðar, Aðalbólsheiði og Efranúpsheiði var hafnað.

Á Vatnsnesi var kröfum íslenska ríkisins um að Breiðabólstaðarafrétt/Engjabrekka teldist þjóðlenda hafnað.

Úrskurður óbyggðanefndar, ásamt skýringarkorti, er birtur á heimasíðu óbyggðanefndar (www.obyggdanefnd.is).

Þar kemur fram að sá sem ekki vill una úrskurði óbyggðanefndar skuli höfða einkamál innan sex mánaða frá útgáfudegi þess Lögbirtingablaðs sem útdráttur úr úrskurði sé birtur í. Er þá unnt að leggja til úrlausnar dómstóla hverja þá kröfu sem gerð hefur verið fyrir nefndinni.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið