Tilkynningar | 01. júní 2015 - kl. 14:45
Harmonikkuhátíðin á Laugarbakka

Hin árlega harmonikkuhátíð fjölskyldunnar verður haldin í Ásbyrgi í Miðfirði dagana 12. - 14. júní. Dansað verður föstudags og laugardagskvöld frá klukkan 21 til 01. Á föstudagskvöldinu spilar stórsveit Dalamanna, Nikkólína. Á laugardagskvöld spilar Hljómsveit Sveins Sigurjónssonar. Á laugardeginum er í boði skemmtidagskrá, happdrætti og kaffihlaðborð frá klukkan 14. Aðgangseyrir er 6.000 krónur.

Nánari upplýsingar gefa Melkorka s.434-1223/869-9265 og Sólveig s. 452-7107/856-1187.

Í Ásbyrgi er góð aðstaða fyrir hátíðargesti. Allir hjartanlega velkomnir.

Nikkólína og H.U.H.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga