Mynd: Blonduskoli.is/ib
Mynd: Blonduskoli.is/ib
Fréttir | 22. september 2015 - kl. 15:41
Frítt í sund og þrek alla vikuna
Hreyfivika UMFÍ á Blönduósi

Hreyfivika UMFÍ „Move Week“ er evrópsk herferð sem hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum reglulega. Í tilefni af hreyfivikunni hafa fjölmörg sveitarfélög á landinu skorað á hvert annað í sundkeppni. Keppnin fer fram dagana 21.-27. september, báðir dagar meðtaldir.

Þátttakendur skrá á eyðublað sem liggur frammi í afgreiðslu sundlaugar hversu marga metra er synt á hverjum degi. Sundæfingar og skólasund telst ekki með. Skráðu þínar ferðir og taktu þátt fyrir þitt sveitarfélag. Blönduósbær er nú í 8unda sæti.

Allar nánari upplýsingar á www.umfi.is.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga