Úr Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna. Ljósmyndin er fengin af Facebook síðu safnsins.
Úr Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna. Ljósmyndin er fengin af Facebook síðu safnsins.
Pistlar | 30. nóvember 2015 - kl. 09:23
Stökuspjall – Mjallar fríða trafið
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Annar vetrarmánuður er hafinn og klakastaka kemur kemur upp í fang:

Þrengist vökin, fannir fjúka,
fyrnast rökin góð.
Herðir tökin hjarnsins lúka,
hímir klökugt stóð. JT

Vök á hyl og rök af grund eru nú sjaldnar í máli manna og því er gott að leita til versasmiða sem bundu okkar dýru tungu í stuðla, rím og hendingar og arfleiddu okkur – ef við kjósum að nýta að nokkru.

Orðsins menn hittu Húnvetningar á laugardaginn í Þjóðskjalasafninu, en rithöfundarnir Einar Már og Friðþór Eydal kynntu nýjar bækur sínar á þessum síðasta degi kirkjuársins. Sögufélagsmenn héldu þá fund í safninu á Laugavegi 162 og hlýddu þar á ungan sagnfræðing, Þórð Vilberg Guðmundsson af Orrastaðakyni, sem gaf fundargestum innsýn í rannsókn sína á mannfelli í austursveitum Húnaþings á hafís- og harðindaárum um miðja átjándu öld. Einn af gestum fundarins kom norðan úr Víðidal og sagði frá nýstofnuðu hollvinafélagi Byggðasafnsins og fjölda verkefna, sérstaklega í viðhaldi húsa og varðveislumálum sem bíða dugandi manna við þetta menningarsetur Strandamanna og Húnvetninga. 

Páll Vídalín lögmaður hafði ekki mörg orð um hvað erfitt væri að varðveita en var líklega ekki síður að sakna æsku sinnar þegar hann kvað vísu um Víðidal og Tungu en þar var einnig hans sveit eins og Ragnars Braga í Jörva, formannsins í nýja hollvinafélaginu.

Ó þú þunga umbreyting.
Ó, þú sprund og halur.
Ó, þú Tunga og allt um kring.
Ó, þú Víðidalur. PV

Einar frá Skeljabrekku safnaði vísum og skráði og finna má gott safn vísna frá Guðmundi á Illugastöðum í handriti Einars Lbs. 3737 8vo.

Einar kvað þetta vetrarvers:

Mína skrýða móður fer
mjallar fríða trafið,
enda líður október
út í tíðarhafið. EÞ

Og ávöxtum svo arfinn okkar og göngum í hollvinafélagið með þeim Ragnari Braga, Steina á Reykjum og öðrum góðum mönnum!

Vísað er til:
Jónas Tryggvason http://bragi.info/hunafloi/visur.php?VID=24652
Páll Vídalín: http://bragi.info/hunafloi/visur.php?VID=25468
Páll Vídalín: https://is.wikipedia.org/wiki/P%C3%A1ll_V%C3%ADdal%C3%ADn
Einar Þórðarson: http://bragi.info/visur.php?VID=5948
2ja mánaða hollvinasamtök: http://reykjasafn.is/
Nýir félagar skrifi: ragnarbragi@gmail.com eða hringi Ã­ síma 844-9238 

Eldra stökuspjall:
Kalda vatnið kemur mér upp: http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=12381
Stjarnlaus nóttin: http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=12367
Rennur saman haf og himinn: http://www.huni.is/index.php?cid=12328
Stutt eða löng töf: http://www.huni.is/index.php?cid=12272
Kjarval málar http://www.huni.is/index.php?cid=12221

Einmitt slík var – móðir þín http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=12203
Heiðin magnar seið: http://www.huni.is/index.php?cid=12180
Útsunnan við mána: http://www.huni.is/index.php?cid=12129
Drottning Húnaflóa: http://www.huni.is/index.php?cid=12080

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga