Lóðin tekur breytingum. Mynd: Húnaþing vestra
Lóðin tekur breytingum. Mynd: Húnaþing vestra
Fréttir | 30. nóvember 2015 - kl. 14:17
Lóð Grunnskólans á Hvammstanga fegruð

Lóð Grunnskólans á Hvammstanga tók heldur betur góðum breytingum í haust þegar kláraðar voru framkvæmdir við hæðarmismun fyrir sunnan skólann að austanverðu. Verktakarnir, Benjamín Kristinsson og Pétur Daníelsson önnuðust verkið. Á vef Húnaþings vestra segir að aðkoma og aðlaðandi umhverfi, styrki jákvæða ímynd skólans og að notendur fái sín notið í fallegu umhverfi.

Á vef Húnaþings vestra má sjá nokkrar myndir sem teknar voru áður en framkvæmdir byrjuðu, á meðan framkvæmdum stóð og síðan þegar framkvæmdum var lokið. Sjá hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga