Fréttir | 22. mars 2016 - kl. 14:31
Bjarmanes Cafe á Skagaströnd verður opið um páskana og ætla listamenn frá Nesi listamiðstöð að vera með sýningu á verkum sínum laugardaginn 26. mars milli klukkan 15 og 18. Á miðnætti föstudagsins langa, þ.e. aðfaranótt laugardagsins 26. mars verður ball með Janus á Borginni. Opið verður á veitingahúsinu frá klukkan 18 þann daginn.
Opnunartími Bjarmanes Cafe yfir páskana:
22.03 Þriðjudag 12:00 til 18:00
23.03 Miðvikudag 12:00 til 18:00
24.03 Skírdag 12:00 til 18:00
25.03 Föstudagurinn langi LOKAÐ
26.03 Laugardagur 12:00 til 18:00
27.03 Páskadagur LOKAÐ
28.03 Annar í Páskum 12.00 til 18.00