Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Sunnudagur, 3. desember 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Desember 2023
SMÞMFL
262728293012
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 02:00 N 5 -8°C
Laxárdalsh. 02:00 A 4 -6°C
Vatnsskarð 02:00 NA 2 -5°C
Þverárfjall 02:00 NA 8 -4°C
Kjalarnes 02:00 9.0 1 -4°C
Hafnarfjall 02:00 NNA 1 -4°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. nóvember 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. nóvember 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
21. nóvember 2023
62. þáttur. Eftir Jón Torfason
18. nóvember 2023
Ingi Heiðmar Jónsson
11. nóvember 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
08. nóvember 2023
Eftir Bjarna Jónsson
06. nóvember 2023
61. þáttur. Eftir Jón Torfason
04. nóvember 2023
Hrútey
Hrútey
Fréttir | 29. júní 2016 - kl. 10:34
Unnið að hönnun nýrrar göngubrúar í Hrútey

Blönduósbær hefur látið hanna nýja göngubrú yfir í Hrútey. Miðað er við að gamla Blöndubrúni verði notuð en hugað er að heildaraðgengi, salernisaðstöðu og bættum gönguleiðum í eyjunni. Hugmyndin er að fá fjárlaganefnd, Framkvæmdasjóða ferðamannastaða og Vegagerðina að verkefninu en bætt aðgengi að Hrútey ætti að gera hana að mun vinsælli áningarstað en nú er.

Þetta kemur fram í skýrslu sveitarstjóra Blönduósbæjar sem kynnt var á sveitarstjórnarfundi 14. júní síðastliðnum en í henni er samantekt um verkefni sem eru í vinnslu á bæjarskrifstofu Blönduósbæjar á hverjum tíma.

Hrútey er friðuð sem fólksvangur að ósk heimamanna og er umsjón fólksvangsins alfarið í höndum heimamanna í samvinnu við Umhverfisstofnun. Í skýrslu sveitarstjóra segir að öðru hvoru hafi komið upp sú umræða að ekki sé þörf á að loka eyjunni um varptímanna sem er frá 20. apríl til 20. júní ár hvert. Nauðsynlegt sé að heimamenn í samvinnu við Umhverfisstofnun móti afstöðu til þess og að þær breytingar, ef til kæmu, yrðu í tengslum við nýja göngubrú.

Þá segir í skýrslunni að einnig mætti skoða að hafa hluta eyjunnar lokaða þó að hægt yrði að ganga úti í hana og hugsanlega upp á efri stallinn á móti bílastæðunum. Önnur umræða sé svo um hvort ástæða væri til að hemja útbreiðslu lúpínunnar í eyjunni en hún sé að mestu norðanmegin í eyjunni.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið