Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:58 0 0°C
Laxárdalsh. 08:58 0 0°C
Vatnsskarð 08:58 0 0°C
Þverárfjall 08:58 0 0°C
Kjalarnes 08:58 0 0°C
Hafnarfjall 08:58 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 30. nóvember 2016 - kl. 12:02
Grettir hættir starfsemi um áramót

Fjölritunarstofan Grettir sf. á Blönduósi ætlar að hætta útgáfu á auglýsinga- og sjónvarpsdagskránni Glugganum um næstu áramót. Einnig verður annarri starfsemi fyrirtækisins hætt í núverandi mynd. Glugginn, sem gefinn hefur verið út í rúmlega 30 ár, hefur verið fastur punktur í tilveru Húnvetninga og kærkominn gestur á heimilum Blönduósinga og nágranna þeirra. Það verður sjónarsviptir af Glugganum.

Skarphéðinn Ragnarsson og Unnar Agnarsson eiga Fjölritunarstofuna Gretti. Þeir keyptu fyrirtækið af Baldri Valgeirssyni árið 1986. Baldur var búinn að gefa út Gluggann áður, líklega með einhverjum hléum í nokkur ár. Ólafur Þorsteinsson hóf störf hjá Baldri árið 1985 og hefur starfað hjá Gretti nær óslitið allar götur síðan. Skarphéðinn, Ólafur og Unnar sáu um útgáfu Gluggans fram til ársins 2000 en þá flutti Unnar frá Blönduósi. Frá þeim tíma hafa þeir Skarphéðinn og Ólafur staðið að útgáfunni nánast að öllu leyti.

Í samtali við Húnahornið segir Skarphéðinn að starfsemi Grettis verði hætti af þeirra hálfu um áramótin og megi því segja að þeir séu að leggja fyrirtækið niður. Spurður hvað tæki við segist hann ekki getað svarað því. Hann vonar að einhver eða einhverjir sjái tækifæri í að halda starfsemi sem þessari áfram, en það verði bara að koma í ljós.

Skarphéðinn segir að það ætti ekki að koma neinum á óvart að útgáfa Gluggans standi ekki undir sér og það gangi auðvitað ekki til lengdar. Illa hafi gengið að hækka auglýsingaverð og hafi það varla hækkað sem nokkru nemi í mörg undanfarin ár, þrátt fyrir hækkanir á nánast öllum aðföngum.  

Fjölritunarstofan Grettir hefur, ásamt útgáfunni á Glugganum, séð um prentun á reikningum og eyðublöðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Flestir eru viðskiptavinirnir úr Austur-Húnavatnssýslu en nokkrir koma frá höfuðborgarsvæðinu. Grettir hefur einnig séð um prentun á dreifibréfum og sölu á pappír.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið