Fréttir | 20. desember 2016 - kl. 15:55
Vill byggja 20 Ãbúða fjölbýlishús á Blönduósi
Bæjarráði Blönduósbæjar hefur borist fyrirspurn, frá einkahlutafélaginu Uppbyggingu, um lóð á Blönduósi sem afmarkast af Húnabraut 4, austurenda Ãþróttavallar, Holtabrautar og Melabrautar. Óskar fyrirtækið eftir að fá að byggja 20 Ãbúða fjölbýlishús á fimm hæðum og er áætlað að verktÃmi standi frá vori 2017 til vors 2018. Byggðarráð fagnar erindinu.
Uppbygging ehf. er à eigu Engilberts Runólfssonar byggingaverktaka. Engilbert rak á árum áður fyrirtækið Stafna á milli sem keypti m.a. eitt umsvifamesta byggingafélag landsins Ris ehf. árið 2007. Ris varð gjaldþrota 2010 en um 330 störfuðu hjá fyrirtækinu þegar mest lét.
Fyrirspurnin frá Uppbyggingu ehf. var tekin fyrir á fundi byggðarráðs sÃðastliðinn föstudag. Byggðaráð fagnar erindinu og þakkaði auðsýndan áhuga á uppbyggingu á Blönduósi. Sveitarstjóra og tæknideild var falið að vinna frekar að málinu.