Tilkynningar | 27. febrúar 2017 - kl. 12:02
Grímuball Blönduskóla í Félagsheimilinu

Árlegt grímuball Blönduskóla verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi á öskudaginn, miðvikudaginn 1. mars næstkomandi. Húsið opnar klukkan 18:30 og hálftíma síðar verður marserað, dansað, kötturinn sleginn úr tunnunni og dansað meira. Dagskránni lýkur klukkan 20:15.

Börn, foreldrar og aðrir bæjarbúar eru hvattir til að koma grímuklæddir á ballið. Miðaverð er kr. 500 fyrir grímuklædda, kr. 1.000 fyrir aðra en frítt er fyrir yngri en 6 ára. Ekki er hægt að greiða með kortum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga