Fréttir | 17. mars 2017 - kl. 14:33
Listsýning í íþróttahúsinu og Gallerí Bílskúr

Sex listakonur, sem dvelja nú um mundir í listamiðstöð Textílseturs Íslands á Blönduósi, munu halda listsýningu á morgun, laugardaginn 18. mars. Listsýningin er tvíþætt. Frá klukkan 10:30 - 14:00 verður vefnaðarverkefni í Íþróttahúsinu á Blönduósi. Þar gefst fólki tækifæri á því að taka þátt í verkefninu. Klukkan 14:00 opnar svo sýning í Gallerí Bílskúr, Árbraut 31.

Listakonurnar sex eru:

Laura (USA) - batik silkimálun
Martha Ann Salt (USA) - vinnur að Ph.D í goðafræði
Amie Kesler (USA) - útsaumur og myndlist
Jane Théau (AUS) - myndlist
Megan Herring (USA) - vefnaður
Marled Mader (GER) - vefnaður

Allir eru hjartanlega velkomnir og boðið verður upp á veitingar.
 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga