Fréttir | 17. mars 2017 - kl. 15:28
Tónleikar karlakórsins Gamlir Fóstbræður í Blönduóskirkju og Félagsheimilinu á Hvammstanga
Karlakórinn Gamlir Fóstbræður verður með tónleika í Blönduóskirkju laugardaginn 25. mars kl. 16:00 og í Félagsheimilinu á Hvammstanga sunnudaginn 26. mars kl. 16:00. Á tónleikunum á Blönduósi mun Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps einnig koma fram og á Hvammstanga munu Lóuþrælar flytja nokkur lög með Gömlum Fóstbræðrum.
Aðgangseyrir er 2.000 kr. og 1.000 kr. fyrir eldri borgara.