Vegir eru víða illa farnir
Vegir eru víða illa farnir
Fréttir | 17. mars 2017 - kl. 15:53
Lýsir yfir vonbrigðum með stöðu samgöngumála á landinu

Byggðarráð Húnaþings vestra lýsir yfir vonbrigðum með stöðu samgöngumála á landinu og skorar á stjórnvöld að finna nú í eitt skipti fyrir öll, lausn á þeim brýna vanda sem skapast hefur í samgöngumálum. Ekki sé aðeins um öryggismál að ræða fyrir íbúa og ferðamenn í landinu, heldur einnig brýnt byggðamál þar sem langlundargeð íbúa, þar sem ástandið er verst, er fyrir löngu þrotið. Þetta kemur fram í fundargerð byggðarráðs frá 13. mars síðastliðnum.

„Miðað við nýjust fréttir um skort á fjármagni til þegar samþykktra framkvæmda er ljóst að hin fjögurra mánaða gamla samgönguáætlun sem afgreidd var á síðasta þingi er í algeru uppnámi. Ekki aðeins þau verkefni sem útlit er fyrir að verði skorin niður á þessu ári, heldur áætlunin öll. Samkvæmt þeim upplýsingum sem byggðarráð fékk á fundi með fulltrúum Vegagerðarinnar fyrir skömmu höfðu þeir nánast ekki úr neinu að spila í almennt viðhald, hvað þá nýframkvæmdir. Síðan sá fundur átti sér stað hefur enn frekar verið skorið niður“, segir í fundargerðinni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga