Tilkynningar | 20. mars 2017 - kl. 09:11
Fjórgangsmót í Reiðhöllinni Arnargerði
Frá hestamannafélaginu Neista

Föstudagskvöldið 24. mars klukkan 19:00 verður Fjórgangur í Reiðhöllinni Arnargerði og T7 í unglingaflokki. Keppt verður í fjórgangi, í flokki unglinga 16 ára og yngri, áhugamanna flokki  og opnum flokki. Einnig verður boðið upp á keppni í T7 fyrir yngri en 16 ára.

Í fjórgangi er riðinn einn hringur á hægu tölti, einn hringur á greiðara tölti, einn hringur á brokki, einn hringur á stökki og hálfur á feti. Áður en keppandi hefur keppni má hann ríða hálfan hring þ.e. hefja keppni að sunnanverðu og ljúka henni þar. Keppandi ræður röð gangtegunda en í lok keppni skal hægja niður á fet.

Skráningar berist á netfangið:  heneisti@gmail.com fyrir klukkan 21:00 fimmtudaginn 23. mars. Skráningargjald í unglingaflokki er kr. 1.500 og kr. 2.000 í öðrum flokkum.  Fram komi nafn á hrossi, uppruni,  aldur og litur. Skráningargjöld má greiða fyrirfram inn á 0307-26-055624 kt. 480269- 7139.

ATH. þeir sem ekki hafa greitt gjöld síðustu móta vinsamlegast klári það mál sem fyrst.

Nefndin.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga