Fréttir | 19. apríl 2017 - kl. 17:02
Garnaveiki í sauðfé á Ytri-Löngumýri

Nýverið var garnaveiki staðfest á sauðfjárbúi í Húnahólfi, nánar tiltekið á bænum Ytri-Löngumýri í Húnavatnshreppi. Á því svæði hefur garnaveiki greinst á tveimur öðrum bæjum síðastliðin 10 ár, að því er fram kemur í tilkynningu frá Matvælastofnun. Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum, en með bólusetningu er hægt að verja sauðfé fyrir sjúkdómnum og halda smitálagi í lágmarki. Á bæjum sem garnaveiki greinist á gilda ýmsar takmarkanir sem lúta að því að hindra smitdreifingu.

Tilfellið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit á búinu en héraðsdýralæknir Norðvesturumdæmis sendi sýni úr veikri kind til greiningar á Keldum sem reyndist jákvætt m.t.t. garnaveiki.

Orsök sjúkdómsins er lífseig baktería af berklaflokki (Mycobacterium paratuberculosis). Helstu einkenni hennar eru hægfara vanþrif með skituköstum. Í þeim hjörðum sem veikin kemur upp getur einnig verið þó nokkuð um „heilbrigða smitbera“. Meðgöngutími í sauðfé er 1-2 ár eða lengri. Garnaveikibakterían veldur bólgum í mjógörn og oft einnig í langa, ristli og lifur. Sýklarnir berast út með saurnum og geta lifað í 1- 1 ½ ár í óhreinindum og pollum umhverfis gripahús, við afréttargirðingar, í sláturúrgangi og í líffærum skepna sem drepast út um haga. Sýking verður um munn með saurmenguðu fóðri og vatni.

Um garnaveiki og varnir gegn henni gildir reglugerð nr. 911/2011. Markmið hennar er að stuðla að útrýmingu garnaveikinnar. Í reglugerðinni eru m.a. ákvæði um þær takmarkanir sem gilda um garnaveikibæi. Þar á meðal er að óheimilt er að láta til lífs sauðfé, geitur eða nautgripi í 10 ár frá síðustu greiningu á garnaveiki eða vanrækslu á bólusetningu. Mikilvægt er að huga að því að smit getur borist með landbúnaðartækjum, heyi, áburði o.fl. en flutningur á öllu slíku frá garnaveikibæjum er einnig óheimill. Reglugerðin kveður einnig á um skyldu til bólusetningar sauðfjár á tilteknum svæðum á landinu. Sinni eigandi sauðfjár ekki skyldu sinni til bólusetningar getur Matvælastofnun fyrirskipað bólusetningu fjárins á kostnað eiganda. Matvælastofnun heldur skrá yfir garnaveikibæi sem aðgengilegur er á heimasíðu stofnunarinnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga