Edda og Þorsteinn við opnun verslunarinnar ásamt Brynleifi syni þeirra.
Edda og Þorsteinn við opnun verslunarinnar ásamt Brynleifi syni þeirra.
Fréttir | 21. apríl 2017 - kl. 09:58
Ný verslun opnar á Blönduósi

Á dögunum var opnuð ný verslun á Blönduósi er þau hjón Edda Brynleifsdóttir og Þorsteinn Hafþórsson opnuðu verslun í húsnæði því er áður hýsti Vínbúðina. Verslunin er að Aðalgötu 8. Í versluninni verður alls konar handverk til sölu ásamt veiðiútbúnaði og veiðileyfum í ýmis vötn á svæðinu.

Edda og Þorsteinn eiga fyrirtækið, Vötnin Angling Service, sem hefur sérhæft sig í þjónustu við veiðimenn. Meira má lesa um fyrirtækið á Fésbókarsíðu þess https://www.facebook.com/pg/anglingservice/about/?ref=page_internal

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga