Fréttir | 24. apríl 2017 - kl. 16:12
Ferðamálafélag A-Hún. auglýsir eftir ferðamálafulltrúa

Ferðamálafélag Austur-Húnavatnssýslu auglýsir stöðu ferðamálafulltrúa lausa til umsóknar.

Starfssvið:

  • Í starfinu felst meðal annars:
    • Umsjón og rekstur upplýsingamiðstöðvar í Austur-Húnavatnssýslu.
    • Vinna við stefnumótun og markaðssetningu ferðamála á svæðinu í samráði við Ferðamálafélag Austur-Húnavatnssýslu og aðra samstarfsaðila.
    • Vinna að ferðamálatengdum verkefnum, auk annarra fjölbreytilegra verkefna.

 

  • Starfsaðstaða er m.a. í húsnæði Þekkingarsetursins á Blönduósi.
  • Þess er vænst að væntanlegur Ferðamálafulltrúi búi á starfssvæði Ferðamálafélags Austur Húnavatnssýslu.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

 

  • Menntun og reynsla á sviði ferðamála (háskólapróf kostur)
  • Reynsla af markaðssetningu æskileg
  • Reynsla af verkefnastjórn æskileg
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, sveigjanleiki og skipulagshæfni er mikilvæg
  • Leiðtogahæfni, jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum er mikilvæg

 

 

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí nk.

 

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Edda Brynleifsdóttir, formaður Ferðamálafélags A-Hún, í s: 862-0474 alla virka daga frá kl.10-16.  Vinsamlegast sendið umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi á netfangið ferdahun@gmail.com

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga