Tilkynningar | 26. apríl 2017 - kl. 21:45
Lillukórinn 25 ára

Afmælis- og lokatónleikar Lillukórsins verða í Félagsheimilinu Hvammstanga laugardaginn 29. apríl klukkan 14:00. Að þessu sinni verða með í kórnum meginþorri þeirra kvenna sem starfað hafa í honum. Kórstjóri er Ingibjörg Pálsdóttir. Stjórnandi og undirleikari er Sigurður Helgi Oddsson. Gestakórar eru Sprettskór og Grundartangakór. Stjórnandi er Atli Guðlaugsson og undirleikari Sigurður Helgi Oddsson.

Enginn aðgangseyrir.

Veglegar veitingar að hætti kórsins og allir hjartanlega velkomnir.

Sérstakir styrktaraðilar tónleikanna eru:

Húnaprent, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga og Landsbankinn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga