Fréttir | 17. maí 2017 - kl. 20:08
Aðalfundur Húnvetningafélagsins

Aðalfundur Húnvetningafélagsins í Reykjavík verður haldinn í Húnabúð, Skeifunni 11 í Reykjavík, þriðjudaginn 23. maí næstkomandi klukkan 20:00. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum félagsins. Formaður mun m.a. gera grein fyrir störfum félagsins á liðnu ári og féhirðir leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.

Dagskrá fundarins er þessi í heild sinni:

Formaður gerir grein fyrir störfum félagsins á liðnu ári.
Féhirðir leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
Skýrsla nefndar og starfsmanna félagsins.
Kosningar.
Önnur mál.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga