Fréttir | 18. maí 2017 - kl. 13:11
Opið á sunnudaginn í tilefni safnadagsins

Í tilefni alþjóðlega safnadagsins í dag verður Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi opið sunnudaginn 21. maí frá klukkan 13:00 til 17:00. Sérstök athygli er vakin á Sumarsýningu safnsins 2016 eftir Önnu Þóru Karlsdóttur, sem ber heitið "Vinjar" og allra síðustu forvöð að sjá hana.

Eins og venja er til fá gestir leiðsögn um safnið eftir því sem hver vill.

Markmið alþjóðlega safnadagsins er að kynna og efla safnastarf í heiminum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga