Tilkynningar | 19. maí 2017 - kl. 09:06
Tiltektardagur á Blönduósi í næstu viku
Tilkynning frá Blönduósbæ

Fimmtudaginn 24. maí, Uppstigningardag, verður tiltektardagur á Blönduósi þar sem bæjarbúar og fyrirtæki eru hvött til að fara yfir sitt nánasta umhverfi og hreinsa til. Af því tilefni mun gámasvæðið vera með opið frá kl. 13:00 – 17:00.

Að lokinni tiltekt mæta bæjarbúar með góða skapið við félagsheimilið kl. 18:00 þar sem sveitarstjórn Blönduósbæjar mun grilla fyrir bæjarbúa. Tökum nú höndum saman og gerum bæinn okkar enn fallegari.

 

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga