HSN Blönduósi
HSN Blönduósi
Fréttir | 29. maí 2017 - kl. 12:53
Hafa ekki dregið uppsagnir til baka

Skiptar skoðanir eru um nýtt kjarasamkomulag milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og ríkisins. Sjúkraflutningamenn í hlutastarfi á Blönduósi hafa ekki dregið uppsagnir til baka og einn þeirra er hættur, að því er fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag.

Á föstudag náðist samkomulag í kjaradeilu ríkisins og sjúkraflutningamanna í hlutastarfi. Samkomulagið var sagt marka tímamót, því í fyrsta sinn væru allir sjúkraflutningamenn á landinu með kjarasamning. Þórður Pálsson, sjúkraflutningamaður á Blönduósi sagði í viðtali í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag þetta ekki rétt. Einungis sé um samkomulag að ræða sem sjúkraflutningamenn séu ekki allir ánægðir með. 

„Í fyrsta lagi að þetta er ekki kjarasamningur og þess vegna fylgja ekki öll þau réttindi sem kjarasamningum fylgja. Síðan var ekki kosið um samninginn og engin hækkun á bakvakt á dagvinnutíma þannig að það er lítið greitt fyrir það. Í sjálfu sér erum við á sömu launum og við vorum á áður, það er bara reiknað öðruvísi út,“ sagði Þórður. Hann er í hópi þeirra sex sjúkraflutningamanna á Blönduósi sem sögðu upp störfum í apríl. Hann sagði óvíst hversu margir þeirra dragi uppsagnirnar til baka.

„Einn hefur gefið það út að hann sé hættur, annar mun hætta einhvern tímann síðar í sumar. Menn eru að melta þetta með sér svona, eða reikna þetta út hvað þeir ætla að gera, hvort þeir ætla að halda áfram eða hætta þessu bara,“ sagði Þórður í samtal við Ríkisútvarpið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga