Fréttir | 31. maí 2017 - kl. 07:03
Sýning um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi

Sýningin Kona á skjön, sem fjallar um ævi og störf Guðrúnar Árnadóttur frá Lundi, verður opnuð á Sauðárkróki 3. júní næstkomandi klukkan 14 en þann dag eru 130 ár frá því Guðrún fæddist. Sýningarhöfundar eru Kristín Sigurrós Einarsdóttir, leiðsögumaður og kennari, og María Guðrún Hrafnsdóttir bókmenntafræðingur og langömmubarn Guðrúnar. Sýningin verður að Aðalgötu 2 og mun standa út júlí. Opið verður alla daga frá klukkan 13-17. Aðgangur er ókeypis og heitt á könnunni.

Í tilkynningu frá sýningarhöfundum segir:

„Rithöfundaferill Guðrúnar frá Lundi er sannkallað ævintýri í íslenskri bókmenntasögu. Óþekkt kona norðan úr Skagafirði verður metsöluhöfundur nánast á einni nóttu og bækurnar  tróna á toppi vinsældarlista í rúma tvo áratugi. Guðrún var orðin 59 ára þegar fyrsta skáldsagan kom út og eftir það skrifaði hún 27 bækur í 11 skáldverkum.

Þetta gerðist í heimi fjölda hindrana fyrir alþýðukonu sem þráði að skrifa skáldsögur. Bústörf og barnauppeldi stóðu í veginum og ritvöllurinn var að mestu karlanna. Hún var dáð af stórum hluta þjóðarinnar en raddsterkir áhrifamenn flokkuðu verk hennar með erlendum afþreyingarbókmenntum og reyfararusli.“

Tilvitnanir úr verkum Guðrúnar:
„Fékkstu þér virkilega ekki bragð þá einu sinni þú reiðst í kaupstaðinn? Skárri er það sparsemin – mér liggur við að segja vesalmennskan.“ (Tengdadóttirin)

 „Hann var gagnfræðingur, laglegur tilhaldspiltur og lét talsvert mikið á því bera að hann væri yfir aðra hafinn. Hafði gaman af að láta útlend orð fjúka yfir þetta óupplýsta útkjálkafólk“ (Utan frá sjó)

Eftirtaldir styrkja sýninguna:
Samfélagssjóður Landsbankans, Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra, Samfélagssjóður Landsvirkjunar, Menningarsjóður KS, Fisk Seafood, Heilbrigðisstofnun Norðurlands,  Nýja kaffibrennslan, Landsbankinn, Lyfja, Marska hf., Sauðárkróksbakarí, Sjúkraþjálfun Sigurveigar, Sveitarfélagið Skagafjörður, Sveitarfélagið Skagaströnd, Sviðsljós og Þekkingarsetrið á Blönduósi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga