Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 11. júlí 2017 - kl. 13:45
Skortur á leiguíbúðum fyrir aldraða

Stjórn Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra vill að sveitarstjórn beiti sér fyrir byggingu hentugra íbúða fyrir aldraða í sveitarfélaginu. Félagið hefur sent sveitarfélaginu bréf sem tekið var fyrir á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra í gær. Í bréfinu kemur fram að skortur sé á leiguíbúðum fyrir aldraða og biðlisti, sem trúlega eigi eftir að lengjast.

Byggðarráð hefur falið sveitarstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs að skoða málið í tengslum við gerð húsnæðisáætlunar fyrir sveitarfélagið.  

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga