Fréttir | 11. júlí 2017 - kl. 22:06
Risa kótelettukvöld og kvöldskemmtun á Húnavöku á föstudaginn

Húnavaka, bæjarhátíð og fjölskylduskemmtun Austur-Húnvetninga, verður haldin um helgina, dagana 14.–16. júlí og er dagskrá hátíðarinnar hin glæsilegasta. Hátíðin verður sett formlega klukkan 18:45 á föstudaginn á bæjartorgi Blönduósbæjar, fyrir framan Félagsheimilið. Þar verða umhverfisverðlaun Blönduósbæjar veitt og síðan verður haldin RISA kótelettukvöld og kvöldskemmtun í Félagsheimilinu. Kóteletturnar koma að sjálfsögðu frá SAH Afurðum og í raspi frá Vilko.

Á þessum einstaka viðburði ætlar Jóhannes eftirherma að fara með gamanmál og Frikki trúbador heldur uppi stuðinu. Þá fer fram frumflutningur á nýju lagi Frjálsa kótelettufélagsins í Austur-Húnavatnssýslu. Björn Þór og félagar hjá B&S sjá um eldamennskuna. Þetta er eitthvað sem enginn má missa af.

Einnig má geta þess að þrír helstu veitingastaðirnir á Blönduósi verða með kótelettur frá SAH Afurðum í raspi frá Vilko á matseðli sínum um Húnavökuna og þá ætlar Kjörbúðin á Blönduósi að gera kótelettum góð skil alla helgina.

Blönduós er þema kótelettunnar um Húnavökuna
Valdimar Guðmannsson, helsti forsprakki Frjálsa kótelettufélagsins, segir í samtali við Húnahornið að kóteletturnar verði bornar fram með sama hætti og gert hefur verið á kótelettukvöldum félagsins í vetur, með rabarbarasultu, grænum baunum, laukfeiti, rauðkáli og kartöflum. Hann segir að líta megi á risa kótelettukvöldið á Húnavöku sem uppskeruhátíð kótelettunnar í Austur-Húnavatnssýslu enda verði þær einnig á matseðlum flestra veitingastaða Blönduósbæjar um helgina og til sölu í Kjörbúðinni. Hann segir kótelettur frá SAH Afurðum með raspi frá Vilko klikki aldrei og sé sannkallaður herramannsmatur.

„Fyrirtækin SAH Afurðir, Vilko, Kjörbúðin, Nesti, B&S og Hótel Blanda koma með einum eða öðrum hætti að því að gera Blönduós að þema kótelettunnar frá SAH Afurðum í raspi frá Vilko um Húnavökuna 2017. Þá mun verslunin Kjörbúðin sjá til þess að allir sem vilja kaupa þessa gæðavöru um Húnavökuna, geti gert sér glaðan dag og fengið sér kótelettu í raspi á grillið sitt. Hjá Nesti (N1) og B&S verður þessi gamli góði veislumatur á matseðli þeirra og þá verður Retro Bistro með í þessari gleði á sínum matseðli en þau eru með veitingar á Hótel Blöndu í gamla bænum. Nú er bara að gera smá vel við sig og fara út að borða og njóta,“ segir Valdimar. Hann vonar að sjá sem flesta sem mætt hafa á kótelettukvöldin í Eyvindastofu síðastliðin þrjú ár og auðvitað miklu fleiri en það.

Aðgangseyrir á þennan frábæra viðburð er aðeins kr. 2.500 fyrir fullorðna og kr. 1.000 fyrir 12 ára (árgangur 2005) og yngri. Barinn verður opinn. Miðapantanir þurfa að berast í síðasta lagi klukkan 12:00 fimmtudaginn 13. júlí á netfangið hunavaka@blonduos.is eða í síma 691-8686 (Kristín) og 893-4331 (Valli).

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga