Fréttir | 12. júlí 2017 - kl. 12:20
Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins opin um Húnavökuna

Sérsýning ársins hjá Heimilisiðnaðarsafninu „Prjónað af fingrum fram“ eftir Aðalbjörgu Jónsdóttur verður opin alla Húnavökuhelgina frá 10 til 17. Sýningin er samstarfsverkefni Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, Heimilisiðnaðarfélags Íslands og Kristínar Schmidhauser Jónsdóttur sem er höfundur samnefndar bókar um Aðalbjörgu Jónsdóttur sem kom út í tilefni aldarafmælis hennar.

Á sýningunni eru tólf handprjónaðir kjólar eftir Aðalbjörgu og eru flestir í eigu fjölskyldu hennar en einnig nokkrir sem lánaðir eru frá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands. Kjólarnir eru allir frábrugðnir hver öðrum, en Aðalbjörg prjónaði kjólana „af fingrum fram“ það er án nokkurra uppskrifta, lét innri tilfinningu, liti og form ráða för. Það tók hana um það bil einn mánuð að prjóna hvern kjól en þá var fædd ný hugmynd sem hún varð að koma frá sér.

Talið er að Aðalbjörg hafi prjónað rúmlega eitt hundrað kjóla. Má rifja upp að árið 1982 hélt hún einkasýningu á Kjarvalsstöðum á handprjónuðum kjólum úr íslenskri ull. Þar sýndi hún 40 kjóla sem allir voru mjög ólíkir hver öðrum, bæði í formi og litavali.

Kjólar Aðalbjargar hafa vakið verðskuldaða athygli á ýmsum sýningum bæði innanlands og utan, þar sem allt fer saman, hugmyndaauðgi, hönnun og handbragð. Það sama átti sér stað í gær þar sem gestir áttu ekki nógu sterk orð til að lýsa hrifningu sinni og undrun hvernig hægt hafi verið að prjóna undurfína, fislétta, útsniðna viðhafnarkjóla úr íslenskri ull. Það var „Gefjunareingirnið“ eða einspinnan sem svo var kölluð – úrvalsull, sem Aðalbjörg nýtti.

Aðgangseyrir er kr. 1.200 fyrir fullorðna og kr. 1.000 fyrir eldri borgara. Frítt er fyrir börn til 16 ára.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga