Fréttir | 04. ágúst 2017 - kl. 13:54
Pönkað á Laugarbakka

Norðanpaunk, árlegt ættarmót pönkara fer fram á Laugarbakka um verslunarmannahelgina. Uppselt er á mótið. Það er félag áhugamanna um íslenska jaðartónlist sem heldur Norðanpaunk og fá meðlimir einir aðgang. Alls koma yfir 40 hljómsveitir fram, bæði íslenskar og erlendar, m.a. Wormlust, Pink Street Boys, Dead Herring, Kælan mikla og Slor.  

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.facebook.com/nordanpaunk eða á www.nordanpaunk.org.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga