Fréttir | 08. ágúst 2017 - kl. 13:40
Sögudagur á Sturlungaslóð

Hinn árlegi sögudagur á Sturlungaslóð í Skagafirði verður laugardaginn 12. ágúst næstkomandi og að þessu sinni er hann helgaður endurútgáfu bókarinnar Á Sturlungaslóð sem hefur verið ófáanleg í mörg ár.

Félagið á Sturlungaslóð boðar til málþings í Kakalaskála þar sem félagsmenn kynna bókina og fær til liðs við sig fræðimennina doktor Árna Daníel Júlíusson, einn af textahöfundum bókarinnar, og Aðalheiði Guðmundsdóttur prófessor í miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands sem munu flytja erindi.

Málþingið hefst klukkan 16 og verða kaffiveitingar og umræður að því loknu og aðgangur ókeypis.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga