Velheppnaðir tónleikar. Ljósm. textile.is
Velheppnaðir tónleikar. Ljósm. textile.is
Fréttir | 11. ágúst 2017 - kl. 09:47
Góð aðsókn að Stofutónleikunum

Góð aðsókn var að Stofutónleikum Heimilisiðnaðarsafnsins sem haldnir voru sunnudaginn 30. júlí síðastliðinn. Sigurdís Tryggvadóttir frá Ártúnum steig þar á stokk ásamt félögum sínum, þeim Ævari Erni Sigurðssyni sem spilaði á kontrabassa og Skúla Gíslasyni sem lék á trommur, en báðir eru útskrifaðir frá Tónlistaskóla FÍH. Sjálf lék Sigurdís á píanó ásamt því að lesa upp ljóð eftir frænda sinn Jónas Tryggvason en mörg lögin voru samin af Sigurdísi við ljóð eftir hann.

Á vef Heimilisiðnaðarsafnsins kemur fram að áheyrendur hafi fagnað vel unga tónlistarfólkinu enda ekki annað hægt en að heillast af hæfileikum þeirra þar sem allt féll saman, einbeiting, ástríða, fegurð og léttleiki í túlkun efnisskrárinnar. Eftir tónleikana var boðið upp á kaffi og ástarpunga sem gestir gerðu góð skil.

Meðfylgjandi mynd er fengin af vef Heimilisiðnaðarsafnsins en þar má sjá fleiri myndir.

Fyrstu sporin voru við Tónlistarskóla A-Hún.
Sigurdís Tryggvadóttir er eins og vinir hennar einnig útskrifuð frá Tónlistaskóla FÍH í rytmískum píanóleik auk þess að vera með kennarapróf. Fyrstu spor hennar voru við Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu, síðar lá leiðin til Akureyrar í Menntaskólann þ.s. hún fór á listnámsbraut og tók framhaldspróf í klassískum píanóleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri. Innan skamms mun Sigurdís hefja framhaldsnám í Odense í Danmörku.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga