Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 15. ágúst 2017 - kl. 10:39
Úthlutun styrkja úr Húnasjóði 2017

Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra í síðustu viku voru lagðar fram umsóknir um styrki úr Húnasjóði 2017. Alls bárust tíu umsóknir um styrk, þarf af voru níu sem uppfylltu skilyrði til úthlutunar. Byggðarráð samþykkti að veita níu umsækjendum styrk úr sjóðnum. Styrkþegarnir hlutu hver um sig 100.000 krónur í styrk en þeir eru eftirtaldir:

Bergþóra F. Einarsdóttir, nám  til M.ed prófs í  leikskólafræði.
Ellen Mörk Björnsdóttir, nám til M.ed  prófs í náms- og kennslufræði tungumála.
Freyja Ólafsdóttir, félagsliðanám.
Guðrún Helga Marteinsdóttir, nám í hjúkrunarfræði.
Jónína Lilja Pálmadóttir, nám til Bs prófs í reiðmennsku og reiðkennslu.
Liljana Milenkoska, nám í hjúkrunarfræði.
Ólöf Rún Skúladóttir, nám til Bsc. prófs í landafræði.
Patrekur Örn Oddsson, nám til Ba prófs í sagnfræði.
Sigrún Elísabeth Arnardóttir, nám til Ba prófs í sálfræði.

Húnasjóður var stofnaður af Ásgeiri Magnússyni og Unni Ásmundsdóttur er ráku Alþýðuskólann á Hvammstanga 1913-1920. Markmið sjóðsins er að stuðla að fag- og endurmenntun íbúa sveitarfélagsins. Styrkir hafa verið veittir úr sjóðnum frá árinu 2001.

 

 

Skrifað af: Ragnar Z. Guðjónsson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga