Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:24 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:24 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:24 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:24 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:24 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:24 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps lýsir yfir þungum áhyggjum vegna boðaðra lækkana á verði til sauðfjárbænda í komandi sláturtíð. Í ályktun sveitarstjórnar segir að verði boðaðar verðlækkanir á afurðaverði til sauðfjárbænda nú í haust að veruleika sé rekstrargrundvöllur sauðfjárbúa í landinu algerlega brostinn. Afleiðingarnar verði, hrun í búgreininni og í framhaldi af því stórfelld byggðaröskun. Leita þurfi lausna án tafar.
Ályktun sveitarstjórnar Húnavatnshrepps var samþykkt samhljóða á sveitarstjórnarfundi í gær. Í henni segir að sauðfjárrækt sé undirstaða byggðar í héraðinu og þar af leiðandi hriktir í byggðinni þegar fótum sé kippt undan þeirri starfsemi.
„Sauðfjárbúskapur er stærsta atvinnugrein innan Húnavatnshrepps og hefur boðuð lækkun á verði til sauðfjárbænda gífurleg áhrif á afkomu heimila í Húnavatnshreppi og sveitarfélagsins í heild. Nú, annað árið í röð standa sauðfjárbændur frammi fyrir verulegri tekjuskerðingu og á komandi hausti af þeirri stærðargráðu að ekkert mun standa eftir af tekjum búanna til greiðslu á launum, þegar kostnaður við framleiðsluna hefur verið greiddur. Laun bænda vegna búrekstrarins verða því engin. Miklir fjárhagsörðugleikar blasa við, sérstaklega skuldsettum bændum. Kemur tekjuskerðing augljóslega harðast niður á þeim sem nýlega hafa byrjað búskap, sem eru í flestum tilfellum yngstu bændurnir,“ segir í ályktuninni.
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps skorar á stjórnvöld, forystumenn bænda, sláturleyfishafa og aðra hlutaðeigandi að leita allra leiða til leysa þá grafalvarlegu stöðu sem uppi er. „Leita þarf lausna án tafar, en drepa ekki málinu á dreif með karpi um orsakir vandans.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |