Fréttir | 17. ágúst 2017 - kl. 07:47
Lýsir yfir þungum áhyggjum vegna verðlækkana á afurðaverði

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps lýsir yfir þungum áhyggjum vegna boðaðra lækkana á verði til sauðfjárbænda í komandi sláturtíð. Í ályktun sveitarstjórnar segir að verði boðaðar verðlækkanir á afurðaverði til sauðfjárbænda nú í haust að veruleika sé rekstrargrundvöllur sauðfjárbúa í landinu algerlega brostinn. Afleiðingarnar verði, hrun í búgreininni og í framhaldi af því stórfelld byggðaröskun. Leita þurfi lausna án tafar.

Ályktun sveitarstjórnar Húnavatnshrepps var samþykkt samhljóða á sveitarstjórnarfundi í gær. Í henni segir að sauðfjárrækt sé undirstaða byggðar í héraðinu og þar af leiðandi hriktir í byggðinni þegar fótum sé kippt undan þeirri starfsemi.

 „Sauðfjárbúskapur er stærsta atvinnugrein innan Húnavatnshrepps og hefur boðuð lækkun á verði til sauðfjárbænda gífurleg áhrif á afkomu heimila í Húnavatnshreppi og sveitarfélagsins í heild. Nú, annað árið í röð standa sauðfjárbændur frammi fyrir verulegri tekjuskerðingu og á komandi hausti af þeirri stærðargráðu að ekkert mun standa eftir af tekjum búanna til greiðslu á launum, þegar kostnaður við framleiðsluna hefur verið greiddur. Laun bænda vegna búrekstrarins verða því engin. Miklir fjárhagsörðugleikar blasa við, sérstaklega skuldsettum bændum. Kemur tekjuskerðing augljóslega harðast niður á þeim sem nýlega hafa byrjað búskap, sem eru í flestum tilfellum yngstu bændurnir,“ segir í ályktuninni.

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps skorar á stjórnvöld, forystumenn bænda, sláturleyfishafa og aðra hlutaðeigandi að leita allra leiða til leysa þá grafalvarlegu stöðu sem uppi er. „Leita þarf lausna án tafar, en drepa ekki málinu á dreif með karpi um orsakir vandans.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga