Fréttir | 20. september 2017 - kl. 11:02
Lýðheilsuganga um gamla bæinn

Ferðafélag Íslands stendur fyrir lýðheilsugöngum alla miðvikudaga í september, um allt land. Göngurnar eru hluti af afmælisdagskrá FÍ en félagið fagnar 90 ára afmæli á árinu. Göngurnar hefjast klukkan 18:00. Í dag verður gengið um gamla bæinn á Blönduósi og eru göngustjórar Katharina Schneider og Guðmundur Pall Jónsson. Upphafsstaður er við bókasafnið á Blönduósi. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangurinn með verkefninu að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Þá má geta þess að í dag verður fjaran gengin frá Ánastaðastapa að Skarði í Húnaþingi vestra og er upphafsstaður göngunnar við Íþróttamiðstöðina á Hvammstanga. Lagt verður af stað klukkan 17:45 og sameinast verður í bíla. Göngustjóri verður Guðmundur Jónsson.

Upplýsingar um göngustaði og gönguleiðir má finna á heimasíðu verkefnisinswww.fi.is/lydheilsa. Þar gefst almenningi einnig kostur á að skrá sig í lukkupott sem dregið verður úr í október og geta heppnir göngugarpar hreppt glæsilega vinninga.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga