Fréttir | 22. september 2017 - kl. 07:43
Opið hús í Nesi

Í dag, milli klukkan 16 og 18, er opið hús hjá Nesi listamiðstöð að Fjörubraut 8 á Skagaströnd. Þar munu listamennirnir Ada Cruz, Selina Latour, Tom R.M., Minh Duc Pham, Samantha Canovas, Meeghan Bisset, Katie Ione Craney, Angelika Rauf, Keg De Souza og Martyna Jastrzebska sýna vinnu sína. Ef vel viðrar ætlar þang-konan að kveikja upp í keramikofni utandyra klukkan 17, að því er fram kemur í tilkynningu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga