Fréttir | 10. október 2017 - kl. 10:55
Fornleifar í Fljótum

Í tilefni af evrópsku menningarminjadögunum mun Minjastofnun Íslands standa fyrir dagskrá laugardaginn 14. október næstkomandi á Gimbur gistiheimili í Fljótum. Þema menningarminjadaganna að þessu sinni er minjar og náttúra og munu af því tilefni verða flutt þrjú stutt erindi sem endurspegla áhrif náttúru á staðsetningu minja og mótun menningarlandslags og varðveislu þess.

Guðmundur St. Sigurðarson Minjavörður Norðurlands vestra mun fjalla um menningarminjar og loftlagsbreytingar. Guðný Zoëga fornleifafræðingur hjá Byggðasafni Skagfirðinga gerir grein fyrir fornleifarannsóknum sumarsins í Fljótum og Hjalti Pálsson ritstjóri Byggðasögu Skagafjarðar veltir fyrir sér landnámi í Fljótum. Í framhaldinu verður heimsóttur einn af þeim fjölmörgu minjastöðum sem nýlega hefur fundist eða nýjar upplýsingar fengist um.

Dagskrá hefst klukkan 13:00, að erindum loknum verður farið á einkabílum á minjastað í nágrenninu, áætlað er að dagskrá ljúki eigi síðar en klukkan 16.

Viðburðurinn er ókeypis og allir velkomnir!

Nánar má lesa um dagskrá evrópsku menningarminjadaganna víðsvegar um land á heimasíðu Minjastofnunar Íslands:

http://www.minjastofnun.is/um-stofnunina/frettir/vidburdir-i-tilefni-evropsku-menningarminjadaganna-2017

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga