Fréttir | 11. október 2017 - kl. 10:44
Íbúafundur um verndarsvæði í byggð

Almennur íbúafundur um verndarsvæði í byggð verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi í dag klukkan 17. Sveitarstjórn Blönduósbæjar vill gera gamla bæinn á Blönduósi að verndarsvæði í byggð og fól Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur að taka saman tillögur og greinargerð um verkefnið. Á fundinum munu fulltrúar teiknistofunnar kynna vinnu sína og ræða málin við íbúa og aðra hlutaðeigandi. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta.

Árið 2015 samþykkti Alþingi lög um heimild til að vernda byggðarheildir og var þannig lagður grundvöllur að því að menningarsögulegt og listrænt gildi einstakra bæjarhluta sé verndað um ókomin ár. Samkvæmt 4. grein laganna skulu sveitarfélög meta hvort innan staðarmarka sveitarfélags sé byggð sem hafi slíkt gildi hvað varðveislu svipmóts og menningarsögu varðar, ásamt listrænu gildi, að ástæða sé til að útbúa tillögu til ráðherra um að hún verði gerð að verndarsvæði í byggð. Í samræmi við þetta fól sveitarstjórn Blönduósbæjar Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur að taka saman tillögu og greinargerð til ráðherra um að gamli bærinn á Blönduósi verði gerður að verndarsvæði í byggð.

Í auglýsingu frá Blönduósbæ um fundinn segir að gamli bæjarhlutinn á Blönduósi eigi sér langa sögu, sem varðveitt er í gömlum húsakosti og heildstæðu svipmóti byggðarinnar. Fæstir þéttbýlisstaðir á Íslandi geti státað af slíkum bæjarkjarna og því sé mikilvægt að varðveisla hans og uppbygging takist vel til. Slíkt gæti falið í sér fjölbreytt tækifæri fyrir íbúa á Blönduósi og styrkt bæjarfélagið í heild sinni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga