Fréttir | 20. október 2017 - kl. 11:13
Breyta mysu í próteinduft og ethanól
Framleiðsla sem markar tímamót í umhverfismálum og nýsköpun innan mjólkuriðnaðarins á Íslandi

Mjólkursamsalan og Kaupfélag Skagfirðinga hafa tekið höndum saman og stofnað fyrirtækið Heilsuprótein sem ætlað er að framleiða verðmætar afurðir úr mysu sem áður hefur verið fargað. Í fyrri áfanga verksmiðjunnar, sem vígð verður á Sauðárkróki nú um helgina, verður framleitt próteinduft úr mysu sem fellur til við ostagerð á Vestur-, Norður- og Austurlandi. Í síðari áfanga verksmiðjunnar, sem áætlað er að komist í gagnið innan tveggja ára, verður framleitt ethanól úr mjólkursykri ostamysunnar og einnig úr mysu sem fellur til við skyrgerð.

Framleiðslan markar tímamót í umhverfismálum og nýsköpun innan mjólkuriðnaðarins á Íslandi og á sama tíma er verið að auka verðmætasköpun með framleiðslu á vörum úr hráefni sem áður fór til spillis.

Áætlað er að hægt verði að framleiða um 300 tonn af þurrkuðu próteindufti á ári, en mysupróteinduft er mikið notað í heilsu- og íþróttavörur og til matvælaframleiðslu. Jafnframt er áætlað að hægt verði að framleiða um 1,5 milljónir lítra af ethanóli á ári en framleiðslan mun nýtast meðal annars í eldsneyti og vínanda. 

„Samstarfið við KS hefur opnað margar dyr og teljum við að hér muni skapast mikil verðmæti með miklum möguleikum á ýmis konar framleiðsluvörum og útflutningi," segir Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar og stjórnarformaður Heilsupróteins. „Með þessu framtaki viljum við einnig leggja okkar á vogarskálarnar í umhverfismálum í okkar framleiðslu og á sama tíma nýta hráefni til fulls."

„Sú nýsköpun sem hefur átt sér stað við nýtingu þessa hráefnis er það sem koma skal í landbúnaði og erum við hjá Kaupfélagi Skagfirðinga virkilega stolt af því að taka þátt í slíkri vinnu. Okkur finnst einnig mikilvægt að vera fyrirmynd annarra fyrirtækja, þá sérstaklega matvælaframleiðenda þegar kemur að nýsköpun og umhverfismálum," segir Sigurjón R. Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri KS. 

Formleg opnun verksmiðju Heilsupróteins ehf. fer fram laugardaginn 21. október á Sauðárkróki þar sem kúabændum, stjórnmálamönnum og öðrum góðum gestum verður boðið til veislu. Meðal annars verður boðið upp á skyrdrykk sem inniheldur mysupróteinið sem og kokteila úr prufuframleiðslu á hinu nýja ethanóli. 

​/Fréttatilkynning

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga