Fréttir | 27. nóvember 2017 - kl. 15:47
Örlagasaga Rúnu Einars

Út er komin bókin Rúna – örlagasaga eftir Sigmund Erni Rúnarsson. Bókin fjalla um sögu Húnvetningsins Rúnu Einarsdóttur en engin íslensk kona hefur unnið jafn glæstra sigra á hestbaki heima og erlendis. Rúna og Sigmundur Ernir verða á Blönduósi á föstudaginn, 1. desember, og kynna bókina. Þau verða í Líflandi Blönduósi klukkan 14 og í Heimilisiðnaðarsafninu klukkan 16.

Í bókakynningu segir: „Rúna lifði í vellystingum á glæsilegum hestabúgarði í Þýskalandi og engin lát virtust vera á velgengninni. En hér segir ekki einungis frá sigrum Rúnu heldur líka konunni á bak við glansmyndina, einsemd hennar og sorgum, konunni sem á tímabili fannst eins og öll sund væru lokuð. Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar af alkunnu innsæi og snilld örlagasögu stúlkunnar sem ólst upp í fásinni og náttúrufegurð í Svínadal í Húnavatnssýslu, konunnar sem náði hæstu hæðum glæsilífs, en líka dýpstu dölum tilverunnar.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga