Fréttir | 05. desember 2017 - kl. 13:37
Aðventuhátíð í Hólaneskirkju

Aðventuátið Skagastrandarprestakalls verður í Hólaneskirkju í dag klukkan 18-19. Kirkjukór Hólaneskirkju, Sunnudagskóla- og TTT- börnin flytja jóla- og aðventusöngva undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista. Fermingarbörn flytja hugvekjuþátt um ljósið og Jólakór barna í 4. og 5. bekk Höfðaskóla syngja falleg lög undir stjórn Ástrósar Elísdóttur. Jón Ólafur Sigurjónsson flytur jólahugleiðingu og Sr. Bryndís jólasögu. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga