Fréttir | 06. desember 2017 - kl. 12:17
Kveikt á jólatrénu á Blönduósi á sunnudaginn

Ljósin á jólatrénu á Blönduósi verða tendruð sunnudaginn 10. desember, að aflokinni aðventuhátíð í Blönduóskirkju, um klukkan 17:00. Sungin verða jólalög og fregnir herma að jólasveinar verði komnir á stjá og láti sjá sig. Jólatréð er fengið úr Gunnfríðarstaðaskógi hjá Skógræktarfélagi Austur-Húnvetninga og er 10 metra hátt sitkahvítgreni sem gróðursett var í skóginum um 1964.

Sunnudaginn 10. desember klukkan 16 verður haldin Aðventuhátíð í Þingeyraklaustursprestakalla í Blönduóskirkju. Boðið er upp á glæsilega dagskrá í tali og tónum. Kirkjukórar prestakallsins sameinast í söng og kveikt verður á kertum aðventukransins. Auðunn Steinn Sigurðsson flytur hugvekju. Ljóðalestur, hljóðfæraleikur og fleira. Í lok stundarinnar í kirkjunni bera fermingarbörn inn aðventuljósið. Eyþór Franzson Wechner organisti kirkjunnar leikur helgilag á orgelið í eftirspil. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga