Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 16. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 17:49 0 0°C
Laxárdalsh. 17:49 0 0°C
Vatnsskarð 17:49 0 0°C
Þverárfjall 17:49 0 0°C
Kjalarnes 17:49 0 0°C
Hafnarfjall 17:49 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Pálmi Jónsson
Pálmi Jónsson
Fréttir | 15. desember 2017 - kl. 09:05
Pálma á Akri minnst á Alþingi

Við þingsetningu Alþingis í gær var Pálma Jónssonar á Akri, fyrrverandi alþingismanns og ráðherra, minnst. Pálmi lést á sjúkrahúsi í Reykjavík 9. október síðastliðinn eftir langvarandi veikindi. Hann var á 88. aldursári. Hann var fæddur á Akri í Torfalækjarhreppi 11. nóvember 1929. Pálmi var öflugur talsmaður bænda og landsbyggðar.

Minningarorð sem flutt voru af Steingrími J. Sigfússyni Alþingi í gær:

Síðan Alþingi var síðast á fundum hefur einn fyrrverandi alþingismaður látist og verður hans nú minnst.

Pálmi Jónsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, lést á sjúkrahúsi hér í Reykjavík hinn 9. október sl. eftir langvarandi veikindi. Hann var á 88. aldursári.

Pálmi Jónsson var fæddur á Akri í Torfalækjarhreppi 11. nóvember 1929. Foreldrar hans voru þau Jónína Valgerður Ólafsdóttir húsfreyja og Jón Pálmason bóndi, síðar alþingismaður og ráðherra og lengi forseti sameinaðs Alþingis.

Pálmi ólst upp á Akri við almenn sveitastörf. Hann lauk búfræðiprófi á Hólum 1948 og varð bóndi á Akri frá 1953. Þar í sveit lét hann fljótt til sín taka, varð m.a. formaður búnaðarfélags hreppsins og átti síðar sæti í hreppsnefnd Torfalækjarhrepps. Hann var um tíma formaður Jörundar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Austur-Húnavatnssýslu. Sumarið 1967 tók svo Pálmi sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra og var kjörinn alþingismaður í þingkosningunum það ár. Hann sat samfellt á Alþingi til 1995, í 28 ár, sat alls á 31 löggjafarþingi. Pálmi varð landbúnaðarráðherra í febrúar 1980 í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens og gegndi því embætti fram í maí 1983. Á þingmannsárum sínum átti Pálmi sæti í mörgum stjórnum og ráðum á þeim sviðum þar sem hann beitti sér mest, landbúnaði, orkumálum, byggðamálum og ríkisfjármálum. Hann var yfirskoðunarmaður ríkisreikninga um skeið og formaður bankaráðs Búnaðarbanka Íslands og stofnlánadeildarinnar síðustu ár sín á þingi og nokkur ár eftir það.

Á Alþingi sat Pálmi Jónsson lengi í landbúnaðarnefnd, en einnig í öðrum þingnefndum og þótti öflugur talsmaður síns flokks hvar sem hann var kjörinn til setu. Hann var formaður fjárveitinganefndar í nokkur ár og síðar varaformaður fjárlaganefndar og lét mjög til sín taka á þeim vettvangi.

Með störfum sínum og dugnaði, hófsamlegum málflutningi og skýrum sjónarmiðum komst Pálmi, er leið á þingferil hans, í forystusveit síns flokks. Hann var þó ekki ávallt samstiga forystunni og fór um tíma aðrar leiðir en naut ávallt trausts og vinsælda í héraði og meðal kjósenda sinna.

Pálmi Jónsson var jafnan hressilegur í bragði og kappsamur, íþróttamannslega vaxinn, bar sig vel og með reisn. Hann var hreinskiptinn og léttur í lund og átti gott með samskipti við fólk. Pálmi var þó alvörumaður að eðli og fastur fyrir þegar því var að skipta. Tilsvör hans og látbragð varð mörgum samferðamönnum hans minnisstætt og vekur enn hlýjar minningar hjá þeim sem honum kynntust.

Með Pálma Jónssyni er genginn öflugur talsmaður bænda og landsbyggðar.

Ég vil biðja þingheim að minnast Pálma Jónssonar með því að rísa úr sætum.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið