Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:28 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:28 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:28 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:28 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:28 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:28 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Sveitarfélagið Húnaþing vestra ákvað í vor að ráðast í markvissa uppbyggingu mannauðs. Gerður var samningur milli Sveitamenntar, mannauðssjóðs Kjalar, Farskólans og Húnaþings vestra um að gera þarfagreiningu á fræðsluþörfum meðal almenns starfsfólks hjá sveitarfélaginu. Markmiðið með vinnunni er að koma símenntun og starfsþróun í ákveðinn farveg, auka starfsánægju og bæta þjónustu, ásamt því að gera fræðsluáætlun með hugmyndum um fræðslu til starfsmanna.
Um var að ræða sérstakt verkefni sem kallast „Fræðslustjóri að láni“ og hefur staðið stofnunum og fyrirtækjum til boða af hálfu starfsmenntasjóða um nokkurra ára skeið. Verkefnið fellst í því að utanaðkomandi ráðgjafi gerir þarfagreiningu á fræðsluþörfum meðal starfsmanna og skilar, að greiningu lokinni, fræðsluáætlun til stjórnenda. Starfsmönnum bjóðast einnig viðtöl við náms- og starfsráðgjafa.
Starfsfólk stofnana Húnaþings vestra komu með tillögur að fulltrúum í stýrihóp til að vinna að þessari áætlun með Farskólanum. Í stýrihópinn voru valin Borghildur Heiðrún Haraldsdóttir frá leikskólanum, Hulda Signý Jóhannesdóttir frá grunnskólanum, Helena Halldórsdóttir frá ráðhúsi, Kristján Svavar Guðmundsson frá þjónustumiðstöð og Vigdís Lillý Sigurjónsdóttir frá bóka- og skjalasafni.
Verkefnið kláraðist í byrjun nóvember þegar Bryndís Þráinsdóttir, starfsmaður Farskólans, afhenti skýrslu um niðurstöður úr viðhorfskönnun sem gerð var á meðal allra starfsmanna sveitarfélagsins, ásamt drögum að fræðsluáætlun til þriggja ára. Byrjað er að vinna eftir henni og er nú í gangi íslenskukennsla fyrir einstaklinga af erlendum uppruna. Eftir áramótin heldur sveitarfélagið áfram með námskeið sem starfsmenn hafa óskað eftir í samvinnu við ýmsa aðila.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |