Fréttir | 08. janúar 2018 - kl. 15:39
Húnaþing vestra leitar að sviðsstjóra

Húnaþing vestra óskar eftir að ráða lausnamiðaðan og metnaðarfullan einstakling í starf sviðsstjóra veitu-, framkvæmda- og umhverfissviðs sveitarfélagsins. Í auglýsingu segir að sviðsstjóri fari fyrir framkvæmda-, umhverfis- og auðlindamálum en undir þau falli meðal annars vatnsveita, fráveita og hitaveita.  Sviðið fer einnig með málefni brunavarna, rekstur eignasjóðs og þjónustumiðstöðvar, garðyrkju- og umhverfismála, hafnarsjóðs og annarra eigna er tilheyra sveitarfélaginu. Á sviðinu starfa sjö manns og er starfsemin staðsett á Hvammstanga.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni:
Yfirumsjón með veitu-, framkvæmda- og umhverfismálum sveitarfélagsins
Vinna við almennan rekstur veitna, viðhaldsverkefni og nýframkvæmdir veitumannvirkja
Ábyrgð og gerð á fjármálum, fjárhags- og starfsáætlunum sviðsins
Dagleg samskipti við viðskiptavini og starfsmenn sveitarfélags
Stefnumótun í samstarfi við yfirstjórn sveitarfélagsins

Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi, verk- eða tæknifræðimenntun er kostur
Reynsla við gerð verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlana
Starfsreynsla við verklegar framkvæmdir
Þekking, áhugi og reynsla af umsjón veitna er kostur
Reynsla í mannlegum samskiptum þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu
Góð tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til  og með 22. janúar 2018.

Umsóknum er hægt að skila á skrifstofu sveitarfélagsins, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, og á netfangið skrifstofa@hunathing.is.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá.  Nánari upplýsingar veitir Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri, sími 455-2400, netfang gudny@hunathing.is.

Samkvæmt jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga