Fréttir | 09. janúar 2018 - kl. 15:12
Höfðaskóli fær styrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar

Höfðaskóli á Skagaströnd hefur fengið úthlutað styrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar. Tilgangur sjóðsins er að efla tækni- og forritunarkennslu í grunn- og framhaldsskólum landsins. Alls bárust 32 umsóknir, flestar frá grunnskólum og var Höfðaskóli einn af ellefu skólum sem fékk styrk. Þá má geta þess að Varmahlíðaskóli í Skagafirði fékk einnig styrk úr sjóðnum. Styrkirnir eru ýmist í formi tölvubúnaðar og/eða fjárstyrks sem fer í að þjálfa kennara til forritunarkennslu en Höfðaskóli fékk einmitt styrk til þess síðarnefnda.

Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar var stofnaður árið 2014 og hafa veitt styrki árlega til skóla landsins. Áður hafa þrír skólar á Norðurlandi vestra hlotið styrk úr sjóðnum, Árskóli, Grunnskólinn austan Vatna og Blönduskóli. Sjóðurinn er samfélagsverkefni og eru hollvinir sjóðsins Reiknistofa bankanna, Íslandsbanki, Landsbankinn, CCP, Icelandair, Össur, Cyan, KOM, Marel og Advania.

Frá stofnun sjóðsins árið 2014 hefur verið úthlutað til skóla landsins styrkjum fyrir hátt í 40 milljónir króna. Á árinu 2017 bættust við öflugir bakhjarlar Forritara framtíðarinnar en þeir eru fyrirtækin Marel og Advania.

Á vef Skagastrandar segir að tækni-og forritunarþekking sé afar mikilvæg nú á tímum upplýsingatæknibyltingar og því séu kennarar Höfðaskóla afar spenntir að takast á við verkefnið í vetur. Frá og með næsta vetri er því gert ráð fyrir að forritun verði mikilvægur þáttur í öllu námi nemenda Höfðaskóla.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga