Ljósmynd: Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps /FB
Ljósmynd: Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps /FB
Fréttir | 10. janúar 2018 - kl. 11:07
Nýársfagnaður 2018

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og Rökkurkórinn í Skagafirði halda sameiginlegan nýársfagnað í Húnaveri, laugardaginn 13. janúar næstkomandi og hefst hann klukkan 20:30. Á dagskrá er kvöldverður, kórsöngur, skemmtiatriði og dansleikur með Geirmundi Valtýssyni.

Hátíðin er opin utan kóranna og eru áhugasamir vinsamlegast beðnir að skrá þátttöku hjá Höskuldi í síma 894-8710, Pétri í síma 821-4349 og eða hjá Valborgu í síma 869-8108.

Miðaverð er kr. 6.000 en enginn posi er á staðnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga