Hrafnhildur Sigurðardóttir. Skjáskot af N4.
Hrafnhildur Sigurðardóttir. Skjáskot af N4.
Fréttir | 01. febrúar 2018 - kl. 11:09
Salthús gistiheimili formlega opnað

Salthús gistiheimili var formlega opnað að Einbúastíg 3 á Skagaströnd síðastliðinn föstudag. Húsið er í eigu Hrafnaness ehf. en reksturinn gistiheimilisins er í umsjón Salthúss gistiheimilis ehf. Að sögn Hrafnhildar Sigurðardóttur framkvæmdastjóra gekk opnunin vel, aðsókn góð og mikil ánægja með húsnæðið.

Meðfylgjandi myndir tók Hrafnhildur á opnunardeginum.

Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 heimsótti Salthúsið á dögunum og ræddi við Hrafnhildi Sigurðardóttur í tilefni af opnuninni. Umfjöllun N4 má sjá hér.

Tengd frétt:

Nýtt gistiheimili á Skagaströnd

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga