Fréttir | 09. febrúar 2018 - kl. 07:04
112 dagurinn í Húnavatnssýslum

112 dagurinn verður haldinn 11. febrúar næstkomandi en hann er orðinn að föstum lið á hverju ári. Í tilefni dagsins verða uppákomur í Húnavatnssýslunum báðum. Í Vestur-Húnavatnssýslu ætla viðbragðsaðilar að bjóða öllum sem vilja í hópakstur um Hvammstanga. Lagt verður af stað frá Húnabúð klukkan 14 og fá allir að fara með á meðan pláss leyfir. Að hópakstrinum loknum verður ný slökkvibifreið Brunavarna Húnaþings vestra afhent formlega. Þá verður opið hús, tertur og kaffi til klukkan 16:00 í slökkvistöðinni.

Hægt verður að skoða búnað og tæki allra viðbragðsaðila og kynnast starfseminni sem fram fer hjá Björgunarsveitinni Húnum, Hvammstangadeild RKÍ, Sjúkraflutningum Húnaþings vestra, Brunavörnum Húnaþings vestra og lögreglunni.

Í Austur-Húnavatnssýslu verður dagurinn með svipuðu fyrirkomulagi og undanfarin ár. Eftir akstur viðbragðsaðila um Blönduósbæ, eða upp úr klukkan 14, ætla þeir að staðnæmast við húsnæði slökkviliðsins svo hægt verður að skoða bílaflotann, sem og önnur tæki. Kaffi, Svali og bakkelsi verður í boði fyrir gesti og gangandi.

Viðbragðsaðilar hvetja alla til að koma og skoða búnað þeirra og þiggja fræðslu um starfsemi þeirra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga