Tillögur að svæðum sem verður unnið að með malbik sumarið 2018. Ljósm: Tæknideild Blönduósbæjar/Loftmyndir ehf.
Tillögur að svæðum sem verður unnið að með malbik sumarið 2018. Ljósm: Tæknideild Blönduósbæjar/Loftmyndir ehf.
Fréttir | 09. febrúar 2018 - kl. 14:57
Malbikunarframkvæmdir á Blönduósi í sumar

Áætlað er að leggja um 9700 fermetra af malbiki á götur og plön í Blönduósbæ í sumar og er áætlaður kostnaður um 76,6 milljónir króna. Samkvæmt tillögum sem lagðar voru fram á fundi byggðaráðs í gær á að yfirleggja malbik á hluta Mýrarbrautar og efsta hluta Hnjúkabyggðar. Lagt verður malbik á nýja götu að MS húsinu frá Hnjúkabyggð og lokið verður við að malbika Smárabraut og tengja við Holtabraut. Þá verður lokið við að jarðvegsskipta Aðalgötu og lagt á hana malbik auk þess sem brekkan verður yfirlögð með malbiki.

Gengið verður frá bílastæðum við Blönduóskirkju og Blönduóskirkjugarð, bílastæði stækkuð við leikskólann og lagt malbik á stíg við Hrútey ef styrkur fæst í það verkefni. Þá á að malbika við leiksvæði Blönduskóla og plan við Þjónustumiðstöð Blönduósbæjar. Þetta eru líklega mestu malbikunarframkvæmdir sem sveitarfélagið hefur ráðist síðastliðin átta ár.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga