Fréttir | 28. febrúar 2018 - kl. 10:53
Stórbingó í Húnavallaskóla

Nemendur í 9. bekk Húnavallaskóla ætla að halda sitt árlega stórbingó næstkomandi föstudag, 2. mars. Húsið opnar klukkan 19:30 og byrjað verður að spila klukkan 20:00. Í tilkynningu frá nemendum kemur fram að vinningar verða stórir og veglegir. Allir geta unnið eitthvað því það verður tombóla og þar veru engin núll. Sjoppan verður auðvitað á sínum stað og hægt að kaupa fullt af nammi, gosi og fleira góðgæti. Allir eru velkomnir.

Miðaverð:
16 ára og eldri - 2500 kr.
7 – 15 ára - 1000 kr.
Ókeypis fyrir börn 6 ára og yngri

Aukaspjöld kosta 300 kr.

Að bingói loknu verður æðislegt kaffihlaðborð sem foreldrar nemenda eru búnir að baka fyrir og er það innifalið í aðgangseyrinum.

Svo verður svaka skemmtilegt diskó fyrir alla til klukkan 00:30.

Nemendur hvetja alla til að mæta og skemmta sér ótrúlega vel.  

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga